Bílaflutningabíll rann
til við enda Þórunnarstrætis í gær svo litlu mátti muna að hann skylli á aðra
bíla. Eins og fram hefur komið áttu margar bifreiðar erfitt í færðinni á
Akureyri í gær og í dag. Engin meiðsl urðu á fólki í þessum óhöppum en töluvert
tjón á bílum.
Skjót viðbrögð lögreglumanns björguðu því að ekki fór verr í Þórunnarstrætinu en
hann stökk inn í bílinn, sem þá var mannlaus, og rétt tókst að bremsa áður en
bíllinn fór á aðrar bifreiðar í kring. Rúv greinir frá þessu.
„Við fengum bíl frá Bílabjörgun til að aðstoða okkur við draga bíl í götunni. Þrátt fyrir að hafa verið í handbremsu fór björgunarbíllinn að renna. Við hlaupum af stað og ég rétt næ að hoppa inn og bremsa áður en bíllinn skellur á fleiri bíla,“ segir Börkur Árnason, lögreglumaðurinn sem um ræðir, í samtali við Rúv.
Með því að ýta HÉR má sjá fréttina frá Rúv og myndband af atvikinu.
UMMÆLI