Lögreglan leitar að vitnum að líkamsárásum í miðbæ Akureyrar

Lögreglan á Norðurlandi eystra auglýsir á Facebook í dag eftir vitnum að tveimur líkamsárásum sem áttu sér stað með stuttu millibili aðfaranótt 18. mars síðastliðinn í miðbæ Akureyrar.

Önnur árásin átti sér stað fyrir utan skemmtistaðinn Vamos og hin árásin fyrir utan húsnæði Sjóvá og Stapa.

Þau sem urðu vitni að þessum árásum eru beðin um að gefa sig fram á lögreglustöðinni við Þórunnarstræti eða hringja í 444-2800 á dagvinnutíma.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!