Lögreglan á Norðurlandi eystra boðar til uppboðs á óskilamunum föstudaginn 11. maí kl. 12.00. Uppboðið verður haldið á lögreglustöðinni við Þórunnarstræti á Akureyri. Þar verður hægt að bjóða í reiðhjól, fjórhjól og fleiri óskilamunu sem hafa verið í vörslum lögreglunnar í ár eða lengur.
Í tilkynningunni segir:
Munir verða seldir í því ástandi sem þeir eru á söludegi og lögreglustjóri tekur enga ábyrgð á ástandi óskilamuna sem verða seldir. Krafist verður greiðslu við hamarshögg.
UMMÆLI