MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Lögreglan gómaði grís í Hagahverfi

Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·
443839845_761527362733644_7509505418873297069_n (1)
kaffid.is

Klukkan hálf fimm í gær kom heldur betur óvenjuleg uppfærsla inn á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi Eystra. Þar stóð:

„Grís í óskilum. Þau eru ýmis verkefnin sem koma inn á borð lögreglunnar. Nú eru lögreglumenn á Akureyri á leið í Hagahverfi, þar sem tilkynnt var um grís á ráfi inni í garði.
Þeir sem hafa upplýsingar um hver mögulegur eigandi dýrsins gæti verið eru beðnir um að hafa samband við viðkomandi og við lögregluna – gegnum síma 112.“

Rúmlega hálfri klukkustund seinna var færslan uppfærð og tekið fram að eigandi gríssins væri fundinn. Færslan vakti mikla lukku meðal netverja, enda aldeilis óhefðbundin lögreglutilkynning.

https://www.facebook.com/plugins/post.php?href=https%3A%2F%2Fwww.facebook.com%2Flogreglannordurlandieystra%2Fposts%2Fpfbid035xhAcqDKvUma2BbYBt5NwhBKwgNP9K9EVvnFsS4crqmCvcbqYucTGn261YGiu1mbl&show_text=true&width=500&is_preview=true

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026