Lögreglan biðlar til fólks að halda sig heima á Siglufirði
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Lögreglan á Norðurlandi eystra sendi í dag frá sér tilkynningu vegna óveðurs á Siglufirði. Þar er fólk beðið um að halda sig heima á meðan veðrið gengur yfir.
„Nú geysa miklir vindar á Siglurfirði og þök hafa verið að fjúka. Veðrið hefur versnað mikið og tjón orðið á eignum. Lögreglan biðlar til fólks að halda sig heima á Siglufirði á meðan veðrið gengur yfir. Viðbragðsaðilar eru að störfum. Tilkynningin verður uppfærð,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út í öllum landshlutum og á öllum spásvæðum. Alls staðar er mælt með því að fólk komi lausamunum í skjól og víða verður lítið eða ekkert ferðaveður.
Tengdar greinar
Uppfært: 14. október 2026





