Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir yfir áhyggjum af aukinni ofbeldishegðun í samfélaginu

Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir yfir áhyggjum af aukinni ofbeldishegðun í samfélaginu

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur miklar áhyggjur af ofbeldishegðun í samfélaginu sem hefur aukist töluvert undanfarin misseri. Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á Facebook þar sem segir að meðal verkefna sem komu upp í embættinu síðustu helgar voru mál þar sem manni var kastað fram af svölum og mál þar sem ekið var á gangandi mann af ásetningi.

„Í allt öðru máli var ökumanni veitt eftirför og við fyrirhugaða handtöku ók sakborningur fyrirvaralaust á lögreglubíl og voru tveir lögreglumenn í mikilli hættu sem stóðu við bílinn. Á föstudag ógnaði maður lögreglumanni með hnífi við handtöku í miklu návígi svo ekki mátti muna miklu að illa færi. Lögregla hefur haldlagt mikið af fíkniefnum undanfarið og rannsóknir í gangi er lúta að skipulagðri brotastarfsemi. Þá eru ótalin heimilisofbeldismál, líkamsárásir og kynferðisbrot sem eru því miður veruleiki,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Aðgerðir og verkefni lögreglunnar munu áfram taka mið af vinnu í forvörnum og mun lögregla beita sér sérstaklega gegn hvers kyns vopnaburði með það að leiðarljósi að tryggja öryggi lögreglumanna og almennings.

Á það er bent að vopnaburður á almannafæri er bannaður og gildir þá engu hvort vopn sé sýnilegt eða borið innanklæða. Viðurlög við fyrsta broti er að lágmarki 150.000 kr. sekt og færist brotið á sakaskrá.

Sambíó
Sambíó