MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Lögreglan á Norðurlandi eystra leitar að vitnum vegna skemmdarverka

Eftir Ingólfur Stefánsson·
logreglan
kaffid.is

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur auglýst eftir vitnum eða einstaklingum sem geta veitt upplýsingar vegna rannsóknar á skemmdarverkum við Móahverfi.

Til rannsóknar eru meiriháttar skemmdarverk sem unnin voru á vörubifreið og vinnuvélum að kvöldi 31. ágúst eða aðfaranótt 1. september síðastliðinn við Móahverfið á Akureyri.

Þeir sem hafa upplýsingar um málið eða urðu varir við mannaferðir á svæðinu, norðan Móahverfis, eru beðnir um að hafa samband í síma 444-2800 eða í nordurland.eystra@logreglan.is.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026