Logi og Hilda Jana leiða framboðslista Samfylkingarinnar í NA-kjördæmi

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021 var samþykktur samhljóða á fundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í gærkvöldi.
Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar, þingmaður og arkitekt leiðir listann, annað sætið skipar Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi í Akureyrarbæ, formaður SSNE og fyrrverandi sjónvarpsstjóri N4. Í þriðja sæti er Eydís Ásbjörnsdóttir forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð og framhaldsskólakennari, fjórða sæti skipar svo Kjartan Páll Þórarinsson íþrótta- og tómstundafulltrúi í Norðurþingi.
Kristján L. Möller og Svanfríður Jónasdóttir skipa heiðurssæti á listanum en hann er skipaður tuttugu kraftmiklum frambjóðendum, með fjölbreytta reynslu og þekkingu, sem eiga það sameiginlegt að vilja vinna að framgangi jafnaðarstefnunnar og beita sér af fullu afli í þágu íbúa kjördæmisins, sem og alls almennings.
„Ég er stoltur af því að leiða áfram lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Allir frambjóðendur Samfylkingarinnar í kjördæminu eru gríðarlega öflugir, en það sem einkennir efstu fjögur sætin á listanum er ekki síst öflugur bakgrunnur í sveitarstjórnum. Öll höfum við setið í sveitarstjórnum og þekkjum vel mikilvægi nærþjónustunnar og nauðsyn þess að auka samvinnu og traust milli ríkis og sveitarfélaga. Ég hlakka til kosningabaráttunnar með þessum góða hópi,“ segir Logi Einarsson.
„Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og ég hlakka til kosningabaráttunnar sem framundan er. Ég brenn fyrir jöfnuði, þá ekki síst byggðajöfnuði, enda tel ég að við sem samfélag eigum mikið undir því að skapa hverjum einstaklingi skilyrði til þess að vaxa og dafna á eigin forsendum í landi sem bæði hefur upp á að bjóða sterka höfuðborg og öflugar landsbyggðir,“ segir Hilda Jana Gísladóttir.
Listinn í heild:
1. Logi Einarsson
Akureyri
Alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar
- Hilda Jana Gísladóttir Akureyri Bæjarfulltrúi og formaður SSNE
- Eydís Ásbjörnsdóttir Eskifirði Framhaldskólakennari og bæjarfulltrúi
- Kjartan Páll Þórarinsson Húsavík Íþrótta- og tómstundafulltrúi
- Margrét Benediktsdóttir Akureyri Háskólanemi
- Sigurður Vopni Vatnsdal Gíslason Vopnafirði Deildarstjóri á leikskóla
- Ísak Már Jóhannesson Akureyri Umhverfisfræðingur
- Lilja Guðný Jóhannesdóttir Neskaupstað Skólameistari
- Ólafur Haukur Kárason Siglufirði Byggingameistari
- Guðrún Einarsdóttir Húsavík Hjúkrunarfræðinemi
- Jóhannes Óli Sveinsson Akureyri Framhaldsskólanemi
- Nanna Árnadóttir Ólafsfirði Félagsliði á öldrunarheimili
- Baldur Pálsson Egilsstöðum Austurlandsgoði
- María Hjálmarsdóttir Eskifirði Verkefnisstjóri
- Sigríður Huld Jónsdóttir Akureyri Skólameistari
- Magni Þór Harðarson Eskifirði Ráðgjafi
- Björgvin Valur Guðmundsson Stöðvarfirði Leiðbeinandi í grunnskóla
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttir Akureyri Alþingismaður
- Svanfríður Inga Jónasdóttir Dalvík F.v. alþingismaður og bæjarstjóri
- Kristján L. Möller Siglufirði F.v. alþingismaður og ráðherra
Tengdar greinar
Uppfært: 25. apríl 2026










