Í gær var uppáhalds dagur prakkara haldinn hátíðlegur. Ýmis fyrirtæki á landinu tóku þátt í 1. apríl með misaugljósum hætti.
Sælgætisframleiðandinn Freyja auglýsti nýja vöru sem Akureyringar yrðu líklega ánægðir með. Alþingismaðurinn Logi Einarsson var að minnsta kosti spenntur fyrir Bernaise dýrum Freyju.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
„Ég hef svosem oft látið glepjast af fyrsta apríl gabbi, yfirleitt tekið því vel og verið fljótur að jafna mig. Í þetta skiptið er ég hins verulega fúll yfir að það sem hefði getað orðið stórkostlegt framlag til matarmenningar heimsins var líklega plat,“ skrifar Logi í skemmtilegri Facebook færslu í dag.










