Logi Már Einarsson, nýr formaður Samfylkingarinnar, segir í stöðuuppfærslu á Facebook í gær að Samfylkingin geti auðveldlega orðið sá bútur sem þurfi til að mynda ríkisstjórn. Með þessu er Logi að ganga þvert gegn því sem Oddný Harðardóttir forveri hans í formannsstólnum hafði sagt í kjölfar ósigurs flokksins í nýafstöðnum kosningum.
„Við munum nálgast þá stöðu af fullri ábyrgð og skoða aðkomu okkar að ríkisstjórn, verði áherslur okkar stór hluti af málefnasamningi,“ segir meðal annars í stöðuuppfærslu Loga.
Athyglisvert verður að sjá hvaða áhrif þessi yfirlýsing Loga hefur á komandi stjórnarmyndunarviðræður en margt virðist benda til þess að Bjarni Benediktsson skili stjórnarmyndunarumboðinu í dag.
UMMÆLI