Kvikmyndin Lof mér að falla sló í gegn um helgina á Íslandi og er frumsýning hennar fjórða stærsta opnun frá upphafi á íslenskri kvikmynd og stærsta frumsýningarhelgi á íslenskri mynd síðan 2016 – aðeins Mýrin, Bjarnfreðarson og Eiðurinn hafa þénað meira á frumsýningarhelgi.
Mikið var af uppseldum sýningum um helgina og greinilegt að landsmenn eru gríðarlega spenntir fyrir því að upplifa Lof mér að falla í bíó. Rúmlega 8300 bíógestir sáu myndina á Íslandi um helgina.
Myndin hefur fengið einróma lof gagnrýnenda og gesta sem hafa gengið út úr bíósölum landsins snortin yfir þeirri sterku upplifun sem hún er. Lof mér að falla stefnir í að verða ein tekjuhæsta mynd ársins miðað við þessa frábæru frumsýningarhelgi.
Gleymið öllum fyrirfram ákveðnum hugmyndum sem þið hafið um íslenska kvikmyndagerð og farið og sjáið #LofMérAðFalla í bíó. Þessi kvikmynd markar þáttaskil í íslenskri kvikmyndagerð og á allt lof og hrós sem hún hefur fengið skilið, til hamingju @baddiz og teymi 🙏🏻 #bíótwitter pic.twitter.com/4vbSzUpLgK
— Silja Björk (@siljabjorkk) September 9, 2018
Baldvin Z leikstýrði Vonarstræti sem sló eftirminnilega í gegn og 58,000 gestir sáu árið 2014. Lof mér að falla er að byrja 30% betur en hún og stefnir því á að gera gott betur en Vonarstræti í kvikmyndahúsum landsins. Myndin er sýnd í Borgarbíó á Akureyri.
UMMÆLI