Píeta

Litir í flæði

Litir í flæði

Pálína Guðmundsdóttir opnar myndlistarsýninguna Litir í flæði í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri þann 19. júlí kl 20-22. Sýningin stendur til og með sunnudagsins 28. júlí. Opið daglega milli kl. 14-17. Málverkin á sýningunni gerði Pálína á Siglufirði árin 2019-2020 og hafa þau aldrei verið sýnd áður. Aðgangur er ókeypis.

“Litir eru hið alltumvefjandi einkenni listaverka Pálínu Guðmundsdóttur. Hún menntaði sig samtímis í málvísindum og myndlist og hefur allt frá upphafi helgað höfundarverk sitt tjáningarmætti lita. Litirnir lýsa málverkin upp og skapa þeim krefjandi nærveru sem jafnframt býður upp á leik og leit að línum og formum, hvort sem um er að ræða andlitsdrætti eða markalínur hins fjölskrúðuga litalandslags” Úlfhildur Dagsdóttir, www.palina.is

Pálína, fullu nafni Guðrún Pálína, nam myndlist í Hollandi 1982-89, fyrst í AKI í Enschede svo framhaldsnám í Jan van Eyck Akademie í Maastricht. Hún flutti til Akureyrar 1991 og hefur verið starfandi myndlistamaður með fjölda sýninga að baki. Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember 2022 gaf hún út bókina Andlit/Faces.

Sambíó

UMMÆLI