Lítið mál fyrir Akureyringa að losa sig við jólatré
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Það verður lítið mál fyrir Akureyringa að losa sig við jólatrén sem hafa lokið hlutverki sínu á heimilum þeirra þessi jólin.
Í næstu viku, eða dagana 8.-12. janúar, munu starfsmenn Umhverfismiðstöðvar fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðarmörk og einnig verða gámar fyrir jólatré við Kaupang, Hagkaup, Hrísalund, Bónus í Naustahverfi og verslunarmiðstöðina við Sunnuhlíð.
Trén verða kurluð og notuð í stíga eða sem yfirlag á trjá- og runnabeð.
Tengdar greinar
Uppfært: 22. apríl 2026










