Listvinnustofa fyrir 7 til 9 ára börn í Sigurhæðum

Helgina 3. til 4. október verður skemmtileg listvinnustofa fyrir 7 til 9 ára börn í Sigurhæðum undir handleiðslu Terezu Kocian.
Hvað myndir þú setja í súpu? Í listvinnustofunni munu börn kanna náttúrulega liti úr rauðrófum, kaffi og túrmeriki og gera tilraunir með áferð, liti og ólíka fleti.
Súpan þarf ekki endilega að snúast um mat. Börnin geta einnig bætt við minningum, tilfinningum, fólki, stöðum eða hverju því sem þeim finnst eiga heima í ímyndaðri súpu. Verkin munu síðan saman mynda eitt stórt sameiginlegt klippimyndaverk,sameiginlegan súpupott sem verður til úr fjölbreyttum hugmyndum og ímyndunarafli.
Skemmtileg smiðja sem fjallar um heimili, tengsl, sköpun og það að búa til eitthvað saman. Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 7 til 9 ára (hámark 8 þátttakendur) og fer fram laugardag og sunnudag kl. 11 til 14. Sýningaropnun er svo á sunnudaginn klukkan 14 í Sigurhæðum.
Tereza Kocian er myndlistarkona sem vinnur með fjölbreytta miðla, þar á meðal málverk, textíl og grafíska hönnun. Verk hennar kanna landslag, minningar og tengsl mannsins við staði í gegnum heima sem bjóða upp á upplifun þar sem raunveruleiki og ímyndunarafl mætast.
Laugardaginn 3. október og sunnudaginn 4. október klukkan 11 til 14. Opnun sýningar sunnudaginn 4. október klukkan 14.
Tengdar greinar
Uppfært: 2. október 2026





