Tveggja daga smiðja fyrir börn í 3. til 6. bekk verður haldin í Listasafninu á Akureyri í tengslum við sýningu á innsetningu listakonunnar Bjarkar Viggósdóttur, Hreyfing fyrir sjón. Smiðjan fer fram 11. og 12. apríl.
Kennt verður báða dagana frá klukkan 11 til 13. Þátttakendur skoða innsetninguna, fá frá henni innblástur og verða partur af listaverkinu. Þau vinna með hreyfingu í skúlptúr, teikningu og alls konar miðla myndlistar, þar sem ímyndunaraflið og sköpunargleðin verður allsráðandi.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Ekkert þátttökugjald en takmarkaður fjöldi þátttakenda og skráning nauðsynleg á netfangið heida@listak.is










