MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Listasumar á Akureyri 2026: Litrík menning og hrífandi listir

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-06-22-at-13.43.37
kaffid.is

Listasumar á Akureyri hefst fimmtudaginn 25. júní og stendur í rúmar þrjár vikur með alls konar viðburðum um allan bæ fyrir fólk á öllum aldri. Einn af hápunktum hátíðarinnar verður á sjálfan opnunardaginn þegar Gilfélagið býður gestum og gangandi á dansiball í göngugötunni.

Dagskráin teygir sig yfir alla daga og má þar finna myndlistarsýningar, uppistand, skapandi vinnustofur, matarsmiðjur, töfrasýningar og alls konar uppákomur sem með einum eða öðrum hætti tengjast litríkri menningu og hrífandi listum.

„Það hafa verið að detta inn viðburðir fram á síðustu stundu og er gaman að sjá hvað skapandi og hugmyndaríkt fólk er áhugasamt um að gera Listasumar spennandi og skemmtilegt,“ segir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir, verkefnastjóri Listasumars. „Ég skora á bæjarbúa og gesti bæjarins að kynna sér dagskrána og er sannfærð um að allir finni þar eitthvað við sitt hæfi.“

Aðgangur er ókeypis á alla viðburði Listasumars.

Dagskrána er að finna á www.listasumar.is.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026