MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Listasafnið á Akureyri hlaut 10.350.000 krónur í styrki

Eftir Ingólfur Stefánsson·
679180277_1633935231608425_2047295524016725347_n
kaffid.is

Aðalúthlutun 2026 úr safnasjóði á vegum Safnaráðs fór fram við hátíðlega athöfn í Þjóðminjasafni Íslands fimmtudaginn 16. apríl síðastliðinn. Úthlutað var alls 131 styrk fyrir samtals 182,7 milljónir króna til 51 styrkþega. Listasafnið á Akureyri hlaut samtals 10.350.000 krónur í styrki til fjölbreyttra verkefna.

Listasafnið á Akureyri hlaut samtals 4,5 milljónir króna til fjögurra verkefna í aðalúthlutun safnasjóðs. Að auki fékk safnið 5 milljónir króna sem seinni hluta öndvegisstyrks, auk 850 þúsund króna í aukaúthlutun vegna þriggja smærri verkefna á árinu.

Í umfjöllun á vef Listasafnsins segir að fjármagnið muni nýtast til áframhaldandi þróunar og fjölbreyttra verkefna á vettvangi safnsins á komandi ári.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026