Listakonan Unnur Stella: „Það er bleikur köttur með tekílaflösku sem hangir á lögreglustöðinni við Hverfisgötu“

Unnur Stella Níelsdóttir er 26 ára Akureyringur sem hefur upp á síðkastið helgað sig myndlistinni. Hún býr í Hollandi en ólst upp á Brekkunni, í Noregi og Englandi.
Unnur Stella er mikil fjölskyldukona og kemur yfirleitt heim til Akureyrar á sumrin. Hún ræddi við Kaffið.is um listina og lífið.
Myndlist sem tjáningarform og núvitund
Unnur Stella er ekki við eina fjölina felld og hefur prófað sig áfram með ólíka listmiðla. Striginn togar þó alltaf mest í hana.
„Ég held að stór partur í þessu sé tengt því að finna eitthvað sem veitir hugarró og ég finn hvergi betri leið til að dreifa huganum en að byrja að mála. Ég er reyndar oft með margar myndir í einu í vinnslu, en þá er ég alveg í essinu mínu, hoppa á milli til að ögra mér aðeins. En ég hef prófað margt annað, til dæmis keramik. Eins mikið og mér finnst það skemmtilegt, og ég hef áhuga á mörgu öðru í skapandi heiminum, þá kem ég alltaf aftur að penslinum, ég bara hreinlega get ekki lifað án málningarinnar og ég gæti ekki tjáð mig betur með öðrum hætti.“
Stefnan var sett snemma
Unnur Stella rifjar upp að nýlega hafi hún fundið möppu frá því hún var í grunnskóla, þar sem hún segist ætla að verða listmálari, ferðast mikið og búa á Ítalíu þegar hún verður stór.
„Ég hef allavega náð öllum þeim markmiðum svo ég er bara frekar sátt með mig! Myndlistarskóli Akureyrar var alltaf uppáhalds staðurinn minn sem barn og ég var sífellt að teikna og mála. Svo þegar ég byrjaði í MA þá datt ég út úr listinni, félagslífið og námið voru í fyrsta sæti en svo skall covid á og tíminn stoppaði, Þá leyfði ég mér að uppgötva þessa ástríðu aftur og ég veit ekkert hvar ég væri í dag ef það hefði ekki gerst. Ég held ég hafi enst í 3 vikur í HA í fjarnámi áður en mamma sagði mér nú bara að fara í listnám.“
Gleðin og sköpunarkrafturinn í forgrunni
Unnur Stella lýsir listsköpun sinni sem litríkri, leikandi og mannlegri, þar sem alvarleikanum er ýtt til hliðar og forvitnin, gleðin og brosið fær að leika lausum hala.
„Fyrir mér hefur alltaf verið mikilvægt að list þurfi ekki endilega að vera flókin til að hafa áhrif. Mér finnst gaman þegar fólk horfir á verk eftir mig og hugsar „vá, hvað þetta er skrítið,“ en finnur um leið fyrir einhverri gleði eða tengingu. Það var mér efst í huga til dæmis þegar ég málaði baðherbergin inni á Terían Brasserie. Mig langaði bara til þess að fá fólk til að brosa og forvitnast kannski á þessum skrítnu fígúrum upp á vegg.“
Hún segir gleðina felast í því að heyra þegar verkin hafi fengið sérstakan stað á heimilum fólks og gleðji það í hversdagsleikanum.
„Nýlega fékk ég til dæmis senda mynd af eftirprenti sem ég gerði, en það er bleikur köttur með tekílaflösku sem hangir á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Það er líklega síðasti staðurinn sem ég bjóst við að kettirnir mínir myndu enda á og mér finnst það svo frábært. Lífið á að vera skemmtilegt og ég held að list megi líka einfaldlega veita gleði.“
Listsköpun sem nær út fyrir strigann
Unnur Stella segir listsköpun sína hafa þróast mikið á síðustu árum. Nýlega var hún í starfsnámi í Hollandi þar sem hún vann með samfélagsmiðaða list, þar sem markmiðið er að færa listina út fyrir hefðbundin sýningarrými og inn í daglegt líf fólks.
„Þar fór ég að rannsaka hvernig list getur skapað samtöl, tengsl og sameiginlega reynslu. Út frá því sóttum ég og kollegi minn um styrk hjá Hollenska ríkinu fyrir verkefni sem sameinar myndlist, mat og samfélag.“
Verkefnið gekk út á að fá fólk til að koma saman á mismunandi vinnustofum til að skapa, deila sögum og kynnast í gegnum sameiginlega upplifun. Útgangspunkturinn var alltaf matur og matargerð.
„Í þessum verkefnum skiptir ferlið og tengslamyndunin jafn miklu máli og hinn sjónræni afrakstur. En við lok starfsnámsins gerðum við bók sem yfirsýn yfir allar vinnustofunnar sem fékk nafnið Yfir Mat/Round De Tafel. Nú hef ég verið aðeins að halda áfram með þetta fyrirbæri, þar sem ég held vinnustofur á Listasumri og fæ fólk til mín í StartStudio í JMJ húsinu, til þess að koma saman og mála borðhald. Það er búið að vera æðisleg upplifun og gaman að sjá hversu ólík verkin eru.“
Hún segir markmiðið ávallt vera að skapa tengingu. ,,Hvort sem það er með litríku málverki sem fær einhvern til að brosa eða samfélagslegu listaverkefni sem fær fólk til að tala saman, þá vil ég að listin mín geri lífið aðeins hlýrra, forvitnilegra og skemmtilegra.“
Borðhaldið heillaði sem mótíf
Unnur Stella var nýlega flutt aftur heim til Akureyrar þegar hún sá mynd af matarborði á samfélagsmiðlum vinkonu sinnar.
„Ég hef reyndar aldrei sagt henni þetta en vinkona mín póstaði mynd af matarborði í story, það greip mig algjörlega, ég var nýflutt heim frá New Orleans og mig langaði að fara í aðra átt en ég vissi ekki hvaða, ég málaði fyrsta borðhaldið mitt samdægurs eftir þessari mynd og það var ekki aftur snúið. Það er þessi tilfinning að setjast saman niður við borðið, með mat og drykk, og fólkinu þínu, sem ég er að reyna að ná í verkunum mínum. Það veitir mér svo mikla hamingju. Hvort sem það sé að fara kaffi hjá ömmu, sem átti alltaf nóg úrval af kræsingum eða út að borða með vinkonum, þá er matur bara svo sterk leið til að mynda og þróa tengingar.“
Unnur Stella segist finna ákveðið jafnvægi í þemunum sem birtast endurtekið í listaverkunum.
„Borðhald, kettir, matur, drykkur, liturinn bleikur. Í köttunum fann ég fyrir sjálfstæði og trausti og í borðhaldinu finn ég fyrir ró og samtengingu. Það gæti verið ástæðan fyrir því að mér finnst þetta tvennt fara svo vel saman, að finna það besta úr báðum heimum,“ segir hún.
Áskorun að stíga út fyrir þægindarammann og prófa eitthvað nýtt
„Ég á svolítið til að festast í sömu hlutnum og ofhugsa óvissuna, vill helst gera allt upp á tíu þegar það kemur að nýjum verkefnum. En stundum er mikilvægara að láta bara vaða. Svo hugsa ég að þegar ég byrjaði að taka við sérpöntunum þá kom ný áskorun, að mála eitthvað sem er mitt og ég elska, en líka sem tengir við kúnnann og sá sem er að panta verkið. Þetta er ákveðin dans en ég er komin með nokkuð gott jafnvægi núna þar sem allir eru vonandi sáttir!“
Samfélagslistin kallar
Mig langar að vinna fleiri og stærri samfélagsleg verkefni, ég elska að vera ein upp á vinnustofu og mála en það getur líka orðið einmanalegt í lengri tíma. Þá kemur samfélagsleg list svo vel inn, að halda vinnustofur í einhverju sem er líka út fyrir þægindaramman minn, kynnast nýju fólki og einhvern veginn ná að deila mínum heimi með öðrum.
Að lokum er Unnur Stella spurð hvað hún myndi gera ef peningar skiptu engu máli og engin hugmynd væri of stór. Hún svarar um hæl:
„Ég myndi hafa stórt rými, sem væri nýtt sem vinnustofa og sýningarrými, með stóru eldhúsi þar sem ég gæti haldið alls konar boð og viðburði, prófað mig áfram með nýjar hugmyndir og fengið annað fólk til að koma og skapa. Það væri líka gaman ef StartStudio gæti opnað dyrnar sínar að öðrum listafólki í mismunandi greinum og samstarfsverkefni gætu blómstrað.“





Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










