Listakonan Unnur Stella heldur skapandi vinnustofu á Akureyri

Akureyrska listakonan Unnur Stella Níelsdóttir verður með skapandi vinnustofu í stúdíóinu sínu, Start Studio, að Gránufélagsgötu 4 á Akureyri föstudaginn 26. júní frá klukkan 15.00-17.00.
Öll eru velkomin, óháð fyrri reynslu í myndlist. Þátttaka er gjaldfrjáls og verkefnið er styrkt af Listasumri á Akureyri.
Á Facebook viðburði fyrir vinnustofuna segir:
„Yfir Mat er þátttökumiðað listaverkefni þar sem þátttakendur koma saman og mála hluti tengda mat, borðhaldi og samveru. Verkefnið skoðar hvernig ólíkir einstaklingar upplifa og túlka sömu hluti á mismunandi hátt og hvernig myndlist getur skapað vettvang fyrir samtal og sameiginlega reynslu.“
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið unnur.stella@gmail.com
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










