NTC

List, lyst og list – skemmtilegasti góðgerðaviðburður vorsins

List, lyst og list – skemmtilegasti góðgerðaviðburður vorsins

Sunnudaginn 26. mars býður góðgerðarhópurinn Ladies Circle 7 Akureyringum og nærsveitungum til myndlistar, matarlystar og tónlistarviðburðar í sal Rauða krossins, Viðjulundi 2, milli klukkan 15 og 18. Á staðnum verður sýning og þögult uppboð á ýmsum listmunum og handverki og rennur allur ágóði óskert til verkefnis Rauða krossins, Stuðningur við flóttafólk.

Ladies Circle eru alþjóðleg góðgerðarsamtök kvenna á aldrinum 18-45 ára þar sem vináttan er í forgrunni. Á Íslandi eru starfræktir 17 LC klúbbar en Ladies Circle 7 er einn af þremur slíkum klúbbum sem starfa á Akureyri. 22 konur eru í klúbbnum sem síðustu vikur hafa skapað fjölbreytt listaverk fyrir uppboðið.

Boðið verður upp á andlitsmálun, blöðrudýr og listasmiðju fyrir börnin og DJ Vélarnar þeytir skífum. Viðburðurinn er opinn öllum, hvort sem það er til þess að leggja góðu málefni lið eða bara til þess að gera sér glaðan dag. Enginn aðgangseyrir er en auk uppboðsins verður tekið á móti frjálsum framlögum til styrktar Rauða krossinum.

Í upphafi árs gerði Akureyrarbær samning um móttöku allt að 350 flóttamanna á árinu 2023. Stuðningur við flóttafólk er viðamikið verkefni en undir það fellur meðal annars Leiðsöguvinir, þjálfun í íslensku og félagsmiðstöð fyrir flóttafólk.

Nánar má lesa um viðburðinn á Facebook.Nánari upplýsingar um starfið má finna á https://ladiescircle.is/ og fylgjast má með undirbúningi viðburðarins á https://www.instagram.com/lc7iceland/

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó