MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Lilja Maren Íslandsmeistari í höggleik 17 til 18 ára

Eftir Ingólfur Stefánsson·
1787428043_1786196739_lilja-meistaramot-2025
Mynd: gagolf.is· kaffid.is

Lilja Maren Jónsdóttir varð Íslandsmeistari unglinga í höggleik í flokki 17 til 18 ára stúlknua á Íslandsmótinu í Golfi sem fór fram dagana 20. til 22. ágúst á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili.

Á vef Golfklúbbs Akureyrar segir að Lilja hafi leikið frábært og stöðugt golf alla þrjá keppnisdagana. Hún lauk mótinu á 224 höffum, átta höggum yfir pari. Hún sigraði með sex högga mun.

„Þetta er enn eini frábæri árangurinn hjá Lilju Maren og við hjá GA erum gríðarlega stolt af henni og hennar frábæra árangri,“ segir á vef GA.

Bryndís Eva Ágústsdóttir deilir 2. sæti í flokki 17 til 18 ára stúlkna á 230 höggum. Björk Hannesdóttir varð í 7. sæti og Ragnheiður Svava Björnsdóttir í 17. sæti.

Nánar má lesa um árangur keppenda GA á vef GA með því að smella hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026