Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Fréttir

Líflegar umræður á Opnu húsi um netöryggi og upplýsingaóreiðu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
75f33ea0-755b-4cae-9783-b086e345151d
kaffid.is

Um 40 gestir mættu í Opið hús í Háskólanum á Akureyri mánudaginn 5. október þar sem rætt var um netöryggi, netsvik og upplýsingaóreiðu. Fleiri fylgdust auk þess með í streymi. Akureyringurinn Skúli Bragi Geirdal, sérfræðingur í félagslegu netöryggi og miðlalæsi, leiddi fræðsluna og skapaðist góð umræða meðal gesta um þær fjölbreyttu hættur sem geta mætt okkur í stafrænu umhverfi. Fjallað er um viðburðinn á vef Háskólans á Akureyri, unak.is.

Skúli fór meðal annars yfir netveiðar, ástarsvik og fjársvik á netinu, auk falsfrétta og upplýsingaóreiðu. Einnig var rætt um áhrif samfélagsmiðla, algóritma og gervigreindar á það efni og þær upplýsingar sem birtast okkur á netinu.

„Góðar umræður sköpuðust að erindinu loknu og ljóst að málefnið snertir marga enda netið orðið stór hluti af daglegu lífi fólks á öllum aldri,“ segir á vef Háskólans.

Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár – Akureyrarbær. Verkefninu er ætlað að auka aðgengi að fræðslu og bjóða fólk velkomið í háskólann okkar allra.

Nánar á unak.is.

Tengdar greinar

Uppfært: 7. október 2026