NTC

Lifandi og fjölbreytt samfélag í 15 ár

Lifandi og fjölbreytt samfélag í 15 ár

Nýlega kom út skýrsla um 15 ára fræða- og menningarstarf á vettvangi AkureyrarAkademíunnar hér í bænum. Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur sá um að taka skýrsluna saman sem ber heitið: Sköpun akademóna. Verkefni og viðburðir 2006-2021.

Tilgangurinn er að halda á lofti og vekja athygli á merkilegu fræða- og menningarstarfi AkAk í þágu samfélags og íbúa hér á svæðinu á liðnum 15 árum.

Frá upphafi hefur markmið AkAk verið að starfrækja fræða- og menningarsetur á Akureyri til að bjóða háskólanemum og þeim sem fást við fræða- og ritstörf upp á aðstöðu til að vinna að hugðarefnum sínum og að styðja við rannsóknir og fræði með því að miðla þekkingu út í samfélagið og stuðla að umræðum.

Skýrslan sýnir að starf að þessum markmiðum hefur skilað góðum árangri og átt þátt í að styrkja búsetu og samfélag hér á svæðinu.

Sköpun akademóna og verkefni:

  • Á liðnum 15 árum hafa tæplega 100 einstaklingar haft samastað til sköpunar innan veggja AkAk sem tekur til tæplega 50 greina eða fræðasviða. Um er ræða fjölbreytt safn verkefna; lokaverkefni í háskólanámi, rannsóknir, skýrslur, tímaritsgreinar, kennsluefni og fleira.
  • Flestir hafa verið í námi við innlenda og erlenda háskóla og í hinum hlutanum er fjölbreyttur hópur sjálfstætt starfandi fræði- og listamanna sem og frumkvöðla.
  • Starfsemi AkAk hefur gefið háskólanemum og þeim sem vinna að fræði- og ritstörfum hér í bæ og víðar tækifæri til menntunar og sköpunar og hluti einstaklinganna hefur ákveðið að flytja til Akureyrar og tekið störfin sín með sér. Innan veggja AkAk hafa þeir stundað kennslu við erlenda og innlenda háskóla og tekið þátt í innlendu og erlendu rannsóknastarfi á fjölbreyttum fagsviðum.
  • AkAk er mikilvægur hluti þeirra innviða sem eru og þurfa að vera fyrir hendi hér á svæðinu til að nýta sem best tækifæri sem felast í störfum óháð staðsetningu með það fyrir augum að gera Norðurland að eftirsóknarverðum valkosti til búsetu, háskólanáms og fræða- og ritstarfa.

Viðburðir á vegum AkAk:

  • Á vettvangi AkAk varð til þverfaglegt samfélag einstaklinga með fjölbreyttan bakgrunn sem hefur skapað frjótt samtal og umhverfi og átt þátt í að auðga mannlíf og menningarstarf hér á svæðinu.
  • Á liðnum árum hefur AkAk staðið fyrir ríflega 150 viðburðum þar sem lögð hefur verið áhersla á að tengja saman ólíka hópa og að virkja almenning til þátttöku.
  • Fjölbreytt viðburðahald hefur þjónað öllum aldurshópum í bænum og sérstök áhersla verið lögð á að sinna vel eldri borgurum með samstarfi við öldrunarheimilin um fyrirlestra fyrir íbúana sem hafa að jafnaði verið opnir almenningi.
  • Auk þessa hefur AkAk lengi átt farsælt samstarf við Háskólann á Akureyri og ReykjavíkurAkademíuna og fyrr á þessu ári hófu AkAk og Akureyrarbær samstarf um að bjóða einstaklingum upp á endurgjaldslausa aðstöðu til að vinna að þróun nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefna.
  • Einnig hafa fjölmargar opinberar stofnanir, félög og fyrirtæki unnið með AkAk að fræðslu- og menningarmálum á liðnum árum eða lagt þeim lið.
Sambíó

UMMÆLI

Sambíó