Opnun Aleppo Kebab hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu á Akureyri. Matsölustaðurinn opnaði klukkan 10 í morgun, 2. ágúst og hefur verið röð við staðinn frá opnun.
Það er Khattab Almohammad, flóttamaður frá Sýrlandi sem er maðurinn á bak við þennan nýja matsölustað. Opið verður til miðnættis í dag og mun hluti af ágóðanum við sölu dagsins renna til Unesco.
UMMÆLI