Lést eftir slys í Glerárdal

Greint var frá því í gær að Þyrla landhelgisgæslunnar hafi flutt slasaðan mann úr Glerárdal á SAk eftir að allar björgunarsveitir í Eyjafirði voru kallaðar út, ásamt lögreglu og sjúkraflutningamönnum.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra nú í morgun kemur fram að maðurinn hefur verið úrskurðaður látinn.
„Tilkynning vegna slyss á Glerárdal við Akureyri. Klukkan 18:32 barst tilkynning vegna slyss á Glerárdal við Akureyri þar sem hjólreiðamaður hafði slasast. Björgunarsveitir voru kallaðar til ásamt öðrum viðbragðsaðilum. Vegna aðstæðna var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar á vettvang til að aðstoða við flutning hins slasaða undir læknishendur, hinn slasaði var fluttur á SAk og var kominn þangað um klukkan 20:20 þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Í ljós kom að um veikindi var að ræða og er málið til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.
Ekki verða gefnar frekari upplýsingar um málið,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










