Leikfangabyssumál enn til rannsóknar
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar mál frá því um verslunarmannahelgina þegar fimm ungir menn voru handteknir fyrir að miða skotvopnum sem reyndust vera eftirlíkingar eða leikfangabyssur á vegfarendur. Á vef RÚV kemur fram að mönnunum var sleppt eftir skýrslutöku og miðar rannsókninni vel en á eftir að skera úr um hvort vopnin flokkist sem eftirlíkingar eða leikföng, verði ákæra gefin út verður það fyrir vopnalagabrot.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










