MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Legsteinn við leiði BSO

Eftir María Hjelm·
749878619_10239920916234035_3341156701655287787_n
kaffid.is

Áki Frostason hefur komið fyrir legsteini þar sem BSO, Bifreiðarstöð Oddeyrar, stóð.

Við athöfnina flutti Áki pistil:

„Bifreiðastöð Oddeyrar. Þeir seldu gulan kamel, rauðan winston, grænan bali, bláan lucky, og gyllta virginíu. Rudda, smokka, pilla og gula BSO kveikjara. Kaffisúkkulaði, mjólk og lottómiða. Þeir voru með snúrusíma og allsgáða manneskju á tuttugu og fjögurra tíma vakt í miðbænum sem hjálpaði fólki að komast heim um miðja nótt, hvort sem það var eitt eða hafði eignast nýjan vin um kvöldið. Þegar ég var lítill átti ég þann draum að verða leigubílstjóri. Þessi draumur varð til eingöngu vegna BSO. Þegar ég fór þarna inn með mömmu eða pabba tók ég alltaf eftir litla glugganum milli sjoppunnar og setustofu bílstjórana. Manneskjan sem sá um sjoppuna, sá líka um að taka við símtölum fyrir leigubílastöðina, og notaði þennan litla glugga svo fyrir samskipti við bílstjórana. Þetta kerfi fannst mér svo sjarmerandi að ég var tilbúinn til að leggja þennan feril fyrir mig til þess eins að vera þátttakandi í þessari snilld. Þessi gluggi var ekki einungis hluti af kerfi sem var snilld, heldur var hann einnig táknrænn fyrir það sem BSO var: Gluggi inn í fortíðina. Gluggi inn í Akureyri sem margir fengu aldrei að upplifa nema í gegn um BSO: Akureyri 20. aldar. Þetta var ekki bara hús sem varðveitti mjög smekklegan byggingarstíl heldur hús sem varðveitti anda heils árhundraðs í lifandi praxís! Kannski er ég að ganga of langt (kannski ekki) en mér finnst mikill missir af BSO bæði sem menningarfyrirbæri, og sem perla í arkitektúr miðbæjarins. Ég skil því eftir þetta litla listaverk og minnisvarða (eins lengi og það fær að lifa) og hvet alla þá sem koma til með að sakna BSO til að koma við og leggja hér blómvönd. Ps: Þegar við vorum að koma legsteininum fyrir kom gamall ferðamaður að okkur og spurði: „Excuse me boys… do you know where I can get a taxi around here?“ Öllum frjálst að gera sér ferð og skilja eftir blóm.“
Legsteinn við leiði BSO

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026