Enski markvörðurinn Lauren Allen er mætt til Akureyrar og mun spila með knattspyrnuliði Þór/KA í Pepsi Max deild kvenna í sumar.
Allen skrifaði undir samning við Þór/KA fyrr í vetur en vegna ástandsins sem myndaðist í samfélaginu vegna Covid-19 gekk erfiðlega fyrir hana að komast til landsins.
Hún er komin til Akureyrar þar sem hún hefur eytt síðustu tveimur vikum í sóttkví. Nú hefur hún lokið sóttkví og mun mæta á sína fyrstu æfingu með liðinu á morgun.
Allen lék með Tindastól frá Sauðárkrók síðasta sumar en þar áður lék hún með Chelsea, Fulham og Crystal Palace í London.
UMMÆLI