MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Langtímaleigusvæði fyrir söluvagna í miðbæ Akureyrar

Eftir Ingólfur Stefánsson·
radhustorg-1200×900-1
kaffid.is

Akureyrarbær hefur auglýst eftir umsóknum um langtímaleigusvæði fyrir söluvagna í miðbæ Akureyrar fyrir árið 2026 á vef bæjarins.

Um er að ræða þrjú stæði fyrir söluvagna á tveimur svæðum. Forleiguréttur er í gildi fyrir umrædd svæði og hefur umsækjandi sem hefur haft leyfi frá fyrra ári forgang að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, að öðrum kosti fellur forleigurétturinn niður. Útgefin leyfi gilda í 12 mánuði.

Umsækjendur skulu kynna sér samþykkt um götu- og torgsölu og fylgiskjöl og skila inn umsókn í gegnum þjónustugáttina ásamt tilskyldum gögnum fyrir 19. desember 2025.

Tengdar greinar

Uppfært: 26. apríl 2026