Landvinnsla komin á fulla ferð eftir sumarleyfi

Vinnsla hófst á ný hjá Útgerðarfélagi Akureyringa í síðustu viku eftir sumarleyfi og þar með er landvinnsla Samherja komin aftur á fullt skrið.
Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, framleiðslustjóra hjá ÚA, segir í samtali við vef Samherja að fyrsta vikan hafi gengið vel. „Það koma stundum upp smávægilegir hnökrar þegar starfsemin er sett aftur af stað eftir sumarstopp, en það gekk greiðlega að leysa úr þeim. Nú erum við svo gott sem komin í full afköst,“ segir Sunneva.
Á hverju sumri er vinnsla stöðvuð tímabundið hjá Samherja á Dalvík og á Akureyri en ekki á sama tíma. Vinnsla fór aftur í gang á Dalvík í júlí. „Þetta fyrirkomulag hefur gefist mjög vel. Með því að hafa ekki báðar vinnslurnar lokaðar samtímis getum við sinnt viðskiptavinum okkar betur og tryggt afhendingu afurða allt árið um kring,“ segir Sunneva.
Þótt hlé sé gert á fiskvinnslu, þá er fjarri því að starfsemi liggi niðri innan veggja vinnsluhúsanna. Sumarið er einkum notað til viðhalds og endurbóta.
„Það má eiginlega segja að húsin fari í slipp, eins og skipin. Þá gefst færi á að sinna viðhaldi, gera breytingar og ráðast í verkefni sem erfitt er að framkvæma á meðan framleiðslan er í fullum gangi. Í sumar voru töluverð umsvif í húsinu, allt að 50 iðnaðarmenn á dag sem unnu að viðhaldi, lagfæringum og uppsetningu nýs tæknibúnaðar,“ segir Sunneva.
Meðal nýjunga eru tveir nýir róbótar sem hafa bæst við vinnsluna. Annar þeirra er sjálfvirkur þrifaróbóti af sömu gerð og tekinn var í notkun á Dalvík í fyrra. Búnaðurinn var þróaður af Samherja í samstarfi við kanadíska fyrirtækið Rbot9 og hefur vakið mikla athygli.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










