MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Landsmót skáta haldið 20.–26. júlí á Akureyri

Eftir María Hjelm·
RO-Landsmot2024-dagur-8-127-1536×1024-1
Mynd: Skátamót.is· kaffid.is

Landsmót skáta er að jafnaði haldið á þriggja ára fresti. Á mótið koma skátar frá Íslandi en jafnframt er erlendum skátum boðið á mótið. Þátttakendur eru á aldrinum 10-17 ára og sjálfboðaliðar 18 ára og eldri.

Á Landsmóti skáta skapast ævintýraheimur þar sem hvert félag byggir upp tjaldbúð þar sem skátarnir búa í vikutíma. Það reynir á skátana og mörg fara út fyrir þægindarammann sinn þegar þau fara í fyrsta sinn á skátamót og dvelja í tjaldi með öðrum. Skátarnir fá tækifæri til að kynnast ólíkum einstaklingum og mynda ný vinatengsl. Skátamót eru ein af lykilstoðum skátastarfs því þar gefst okkur kostur á að efla leiðtogahæfni og skapandi huga. Úti í náttúrunni getur skátinn fundið tengingu við umhverfið og eigin tilveru. Við tökumst á við krefjandi áskoranir sem styrkja sjálfstraust, ábyrgð og þekkingu okkar.

Dagskráin er fjölbreytt og meðal annars er boðið upp á leiki, hike, bæjarferðir, þrautir, kvöldvökur og næturleiki ásamt mörgu öðru.

Á mótinu munu þátttakendur kynnast tröfrandi heimi Hamra og nágrennis. Svæðið er fjölbreytt og þar má upplifa allskyns ævintýri í náttúrunni. Skátarnir munu virða fyrir sér veðurfarið, gróðurinn og samfélagið svo eitthvað sé nefnt.

Þemað ber titilinn „á norðurslóð“ og mun tengjast inn í alla dagskrá mótsins með einum eða öðrum hætti. Skátarnir munu fá tækifæri til að kynnast sjálfbærni á norðlægum slóðum og tengja verkefni sín inn í heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026