Landslag andlitanna – Sýningaropnun í Deiglunni á fimmtudaginn

Landslag andlitanna – Sýningaropnun í Deiglunni á fimmtudaginn

Angelika Haak er gestalistamaður Gilfélagsins í mars. Hún stendur fyrir opnun á sýningu sinni í Deiglunni kl. 16.00 fimmtudaginn 27. mars næstkomandi. Sýningin ber nafnið ‚Facial landscapes‘ (Landslag andlitanna) og verður opin frá 16 til 20 fimmtudag og föstudag en frá 14 til 18 á laugardaginn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gilfélaginu, þar sem einnig segir:

Angelika Haak er vídeólistamaður frá Köln í Þýskalandi. Vídeóportrett eru lykilþáttur í hennar listræna starfi. Þetta eru verk sem leika á mörkum málverka, ljósmynda, skúlptúrs og myndbandsverka. Angelika Haak ransakar sleitulaust byggingu sjálfsmyndar og afbyggingu hennar í verkum sínum. Hún einbeitir sér að fólki og hugmyndum þess, hugsanaferli og hugsjónum. Vídeóportrettin eru íhugul verk, sem eiga áhrifamátt sinn að þakka samhverfu, einföldun og endurtekningu. Þau leiða áhorfandann í einbeitingu þar sem sér í hinn innsta kjarna.

Sambíó
Sambíó