Framsókn

Landsbankinn á Akureyri flytur sig yfir í nýtt húsnæði

Landsbankinn á Akureyri flytur sig yfir í nýtt húsnæði

Landsbankinn á Akureyri mun flytja sig yfir í Hofsbót 2-4 á Akureyri fyrir árslok 2024, samkvæmt langtímaleigusamningi sem gerður hefur verið við eigendur húsanna.

Um er að ræða húsnæði sem er í byggingu að Hofsbót 2 og einnig hluta jarðhæðar Hofsbótar 4, en húsin eru aðeins steinsnar frá núverandi húsakynnum bankans. Nýja húsnæðið er samtals um 600 fermetrar að stærð. Þetta kemur fram á vef bankans.

„Útibúið á Akureyri er ein af kjarnastarfstöðvum bankans og þar vinna nú um 30 manns. Flest vinna í útibúinu sjálfu en einnig er þar stórt þjónustuver sem þjónar viðskiptavinum um allt land. Nýja húsnæðið er mun hagkvæmara í rekstri og hentar betur undir starfsemina,“ segir á vef Landsbankans.

Landsbankinn bauð gamla Landsbankahúsið við Ráðhústorg til sölu í fyrrahaust og tók í kjölfarið tilboði hæstbjóðanda. Gamla húsið er 2.300 fermetrar að stærð.

Sambíó

UMMÆLI