MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Lætur af störfum hjá Samherja eftir rúm 40 ár

Eftir Ingólfur Stefánsson·
709068267_1296598529285532_163333758916901631_n
kaffid.is

Heimir Tómasson vélstjóri lætur nú af störfum hjá Samherja eftir rúm 40 ár. Heimir hefur starfað fyrir eða með Vilhelm og Baldvin Þorsteinssonum og afkomendum þeirra á sjó og landi nánast samfellt frá 1964. Fyrst hjá Útgerðarfélagi Akureyringa, nokkur ár á Súlunni EA og síðan samfellt hjá ÚA og Samherja frá 1975, þar af síðustu 25 árin í landi. Þetta kemur fram í tilkynningu á samfélagsmiðlum Samherja í dag.

„Þetta hafa verið góð ár og samstarfið alla tíð mjög gott. Breytingarnar frá því að ég byrjaði sem vélstjóri á gufutogurum ÚA og síðan á Harðbak EA, Akureyrinni EA og Baldvin Þorsteinssyni EA hafa verið með ólíkindum. Hvort sem það snýr að vélbúnaði, tölvutækni eða veiðarfærum,“ segir Heimir og bætir við:

„Ég segi hiklaust að Samherji sé í fararbroddi á mörgum sviðum. Þótt ég láti af störfum á þessum tímapunkti, enda að verða 79 ára, kem ég örugglega til með að kíkja í kaffi af og til. Hérna hefur skapast vinátta sem er mér mikils virði og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að taka þátt í margvíslegum verkefnum,“ segir Heimir Tómasson.

Efnt var til kveðjusamsætis á verkstæði Samherja í gær en síðasti formlegi starfsdagurinn er í dag. Kristján Vilhelmsson og Anna María Kristinsdóttir mannauðsstjóri Samherja þökkuðu Heimi fyrir langt og farsælt samstarf.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026