MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Læknum fjölgar við Heilsugæsluna á Akureyri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
ovidunandi_stada_helbri_2

Heilbrigðisstofnun Norðurlands tilkynnti á heimasíðu sinni í dag að læknum hafi fjölgað á Heilsugæslunni á Akureyri. Íbúar hafi nú möguleika á því að skrá sig hjá fjórum nýjum heimilislæknum.

Jón Torfi Halldórsson yfirlæknir Heilsugæslunnar á Akureyri var að vonum ánægður með nýráðningu læknanna og auknum áhuga meðal lækna að starfa við Heilsugæsluna á Akureyri:

„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að geta boðið upp á sérnám í heimilislækningum á Akureyri og við Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Það ber að þakka auknum skilningi og stuðningi ráðuneytis heilbrigðismála við hugmyndir okkar um eflingu sérnáms í heimilslækningum á Akureyri og landsbygðinni almennt.“

Tengdar greinar

Uppfært: 22. apríl 2026