Range Rover bifreið eyðilagðist þegar eldur kom upp í henni á bílastæðinu við Bogann klukkan rúmlega 16 í dag.
Enginn var í hættu en nokkrar skemmdir urðu á annarri bifreið sem lagt var við hlið hinnar einkum vegna hitans samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Þar á meðal lakkið og plast sem sviðnaði.
Eigandi bifreiðarinnar hafði átt erindi í íþróttahúsið en ekki liggur fyrir hvað olli eldsvoðanum en eldurinn kom upp í vélarrými bifreiðarinnar. Málið er í rannsókn.
UMMÆLI