MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Kvennaliðið hefur keppni í Toppdeildinni í dag

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
oli14017-1
Ljósmynd af vef SA· kaffid.is

Meistaraflokkur kvenna hjá SA hefur leik í Toppdeildinni í dag þegar liðið tekur á móti Íslandsmeisturum SR í Skautahöllinni á Akureyri klukkan 16:45. Samkvæmt vef SA hafa nokkrar breytingar orðið á hópi og starfsliði SA fyrir veturinn. Emil Alengård er tekin við sem nýr yfirþjálfari og þær Sunna Björgvinsdóttir og Hilma Bóel Bergsdóttir eru mættar aftur en Aðalheiður Ragnarsdóttir og Kolbrún Björnsdóttir hafa fært sig til liða erlendis. Að öðru leyti er kjarninn í liðinu sá sami frá síðasta tímabili og Shawlee Gaudreault er áfram aðalmarkvörður liðsins.

Þrjú lið taka þátt í deildinni í ár, SA, SR og Fjölnir, en SA mun leika sinn næsta leik á heimavelli gegn Fjölni á laugardaginn.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026