MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Kvenfélag Reykdælinga gaf Krílabæ ný leikföng

Eftir María Hjelm·
thingeyjarsveit-hvad-er-ad-fretta-19
kaffid.is

Kvenfélag Reykdælinga færði leikskólanum Krílabæ gjöf á dögunum. Greint er frá á vef Þingeyjarsveitar.

Félagskonurnar Jóhanna Eydís og Þórhildur afhentu leikskólanum ný og vönduð leikföng að andvirði 100.000 króna. Þessi rausnarlegi stuðningur vakti mikla lukku og gleði á meðal allra í leikskólanum.

Bæði börn og starfsfólk voru afar þakklát fyrir þennan hlýja hug og sýndan stuðning. Mikil eftirvænting ríkti á deildunum þegar gengið var frá nýju leikföngunum, enda voru allir spenntir að leika sér og prófa nýju leikföngin. Gjöfin mun vafalaust auðga leikskólastarfið og skapa margar skemmtilegar stundir.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026