MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Kveldúlfur er kominn til að vera

Eftir Ingólfur Stefánsson·
DST_3675
Mynd: Daníel Starrason· kaffid.is

Tónlistarhátíðin Kveldúlfur fór fram á Hjalteyri í annað sinn síðastliðinn laugardag, 15. ágúst. Fjölbreyttur hópur íslenskra tónlistarmanna kom fram og samkvæmt skipuleggjendum hátíðarinnar heppnaðist hún fullkomlega.

„Gestafjöldi var fjórfaldur á við í fyrra og fór allt vel fram. Við vorum alveg fáránlega heppin með veður, sólin skein allan tímann og fjörðurinn skartaði sínu fegursta. Mikil ánægja á meðal bæði gesta, skipuleggjenda og tónlistarfólks, við erum hreinlega í skýjunum! Fólk sat í sólinni og spjallaði, fór í pottinn, gæddi sér á grískum skyndibita sem sló algjörlega í gegn (frá Souvlaki Greek Taste, matarvagni sem heldur til á Akureyri) og svo voru veitingastaðirnir Eyri (á Hjalteyri) og Baccalao á Hauganesi með sameiginlegt útieldhús þar sem boðið var upp á elgborgara, hægeldað pulled pork og kjötsúpu,“ segir í tilkynningu.

„Benni Hemm Hemm fékk óvart alla með sér í fjöldasöng er hann flutti París Norðursins, í minningu síns besta vinar, Svavars Péturs / Prins Póló. Það var ekki laust við nokkur tár hjá þeim sem þekktu Prinsinn. Stjarna fæddist þegar Pitenz steig á svið, kannski sá óþekktasti á listanum en klárlega einn af þeim sem mest var talað um. Inspector Spacetime kveikti hressilega í dansgólfinu og svo stigmagnaðist stemningin út kvöldið. Bent reif sig sjálfsagt úr að ofan og Hjálmar slógu botninn í hátíðina með sínum einstaka hætti. Það var alveg magnað að hlusta á þá flytja Leiðina okkar allra og sjá hvað hátíðargestir ljómuðu allir, eins og hver og einn ætti sína eigin tengingu við lagið. Fjörinu lauk um 01, þó einhverjir hafi verið áfram og skemmt sér.“

Í tilkynningunni segir enn fremur að skipuleggjendur hafi fundið fyrir miklum stuðningi frá Hjalteyringum og öðrum sem heimsækja eyrina reglulega.

„Við heyrum það helst að þetta sé frábært og skemmtilegt framtak. Kveldúlfur er kominn til að vera!“

Hér má skoða myndir sem Daníel Starrason tók á hátíðinni.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026