Tveir drengir kveiktu í blaðakassa við Víðilund á Akureyri í gær. Ekkert tjón varð vegna íkveikjunnar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri.
Að sögn lögreglunnar þá sást til tveggja drengja sem forðuðu sér af svæðinu. Lögregla biðlar til þeirra sem kunna að hafa upplýsingar um málið að hafa samband.
UMMÆLI