MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Kveður Samherja eftir nærri 25 ára starf

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-07-30-at-12.54.35
kaffid.is

Antonina Kuznecova lét nýverið af störfum hjá Samherja á Dalvík en hún hefur starfað samfellt hjá félaginu í liðlega 24 ár. Hún var formlega kvödd af samstarfsfólki í morgun og þakkað fyrir samstarfið. Greint er frá á samfélagsmiðlum Samherja í dag.

Antonina er rússnesk en hefur verið með íslenskt ríkisfang í 18 ár. Hérna á Íslandi hefur hún alla tíð búið á Dalvík og líkar afskaplega vel.

„Fyrst vann ég hjá Norðurströnd hérna á Dalvík en frá upphafi 2002 alfarið hjá Samherja. Hérna hefur mér liðið vel og eignast marga góða vini. Tíminn hjá Samherja hefur í raun verið frábær, hérna eru allar aðstæður eins góðar og best verður á kosið.Samvinnan við yfirmennina, Sigurð Jörgen Óskarsson og Jón Sæmundsson, hefur verið einstök og sömu sögu er að segja um allt annað starfsfólk. Það var mikill munur að fara úr gamla vinnsluhúsinu yfir í þetta nýja, hérna er tæknin mikil og vel hugsað fyrir öllu. Þessi kveðjustund í morgun snart mig sannarlega. Ég segi bara takk fyrir mig,“ segir Antonina.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026