Kveður Samherja á sextugsafmælinu eftir 30 ára starf

Guðný Ingibjörg Grímsdóttir starfsmaður hjá fiskþurrkun Samherja á Laugum í Reykjadal lætur af störfum nú um mánaðamótin. Hún hóf störf í fiskþurrkun árið 1996.
„Þá byrjaði ég bara í glenningu og það var ekki eins og í dag, öll þessi færibandavinna sem við þekkjum, heldur var þetta handgert. Svo var ég í afslætti líka og pökkun. Eftir að Samherji tók við þessu þá fór ég fljótlega að sjá um eldhúsið og starfsmannaaðstöðuna. Ég hef verið hér í þessi 30 ár, helming ævinnar, og gengið í nánast öll störf,“ segir Guðný. Auk þess hefur hún gegnt stöðu trúnaðarmanns á vinnustaðnum í um 20 ár.
Efnt var til kaffisamsætis með starfsfólki á Laugum vegna þessara tímamóta en einnig til að fagna sextugsafmæli Guðnýjar sem var í gær. Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja þakkaði Guðnýju fyrir langt og gott samstarf.
„Þetta hefur verið frábær vinnustaður í alla staði. Það sem stendur upp úr eru framfarirnar og hvernig tæknin hefur þróast. Frá því ég byrjaði og til dagsins í dag má segja að það hafi verið þrjár kynslóðir vinnslulína. Starfsmannafjöldinn hefur á sama tíma haldist svipaður og ég tel að þessi vinnustaður skipti samfélagið miklu máli. Þannig að ég kveð mjög sátt við þennan tíma,“ segir Guðný Ingibjörg Grímsdóttir í tilkynningu á samfélagsmiðlum Samherja.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










