Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Krútt- og Smátónó

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Screenshot-2026-09-24-at-11.17.30
kaffid.is

Tónlistarskólinn á Akureyri býður núll til þriggja ára börn velkomin á nýsmíðuð námskeið: Krútt-tónó og Smá-tónó. Krútt-tónó hófst síðasta vetur, en þangað koma 4-12 mánaða börn í fylgd foreldris að syngja og njóta tónlistar í góðum hópi. Sigrún Magna Þórsteinsdóttir kennir í Krútt-tónó. Í vetur bætir hún við Smá-tónó 1, fyrir eins árs börn í fylgd með foreldri eða öðrum aðstandanda.

Sophia Fedorovych kennir á námskeiðinu Smá-tónó 2. Það er ætlað tveggja og þriggja ára börnum í fylgd aðstandanda. Sophia og Sigrún hafa báðar menntað sig í kennslu svo ungra barna og smíða námskeiðin nýju þannig að þau henti hverjum aldurshópi, og að samhengi sé á milli áfanga.

Í Krútt-tónó og Smá-tónó er von á góðu fjöri og góðum rólegheitum, allt eftir aldri og þörfum þátttakenda. Krútt-tónó og Smá-tónó 1 eru kenndir sex föstudaga og hefjast 2. október. Smá-tónó 2 er kenndur átta miðvikudaga, og hefst 7. október.

Þau sem eru áhugasöm um þátttöku geta haft samband við Tónlistarskólann á Akureyri gegnum netfangið tonak@tonak.is eða í síma 460 1170, eða skoðað frétt á heimasíðu skólans: https://www.tonak.is/is/skolinn/frettir/krutt-og-smatono

Tengdar greinar

Uppfært: 24. september 2026