Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
MAK
Menning

Krókódílar í affallinu, frumkvöðlar á hjólunum og dans á himinhvolfinu

Eftir Ingólfur Stefánsson·
idnver-eimur-78
kaffid.is

Um þessar mundir er undirbúningur fyrir HönnunarÞing í fullum gangi. Síðustu ár hefur Húsavík orðið að miðpunkti nýsköpunar og hönnunar á landsvísu yfir eina helgi. HönnunarÞing verður haldið í fjórða sinn dagana 25. og 26. september næstkomandi.

Þemað í ár er einstaklega spennandi, ORKA! Hugtakið orka verður skoðað í víðu samhengi og horft á úr mörgum áttum. Erindin eru mörg og fjölbreytt. Dagskrána má finna hér: https://hradid.is/dagskra-honnunarthings-2026/

,,Á dagskránni eru hiti, gleði, krókódílar, frumkvöðlar á sviði orkumála, listir, samfélagsverkefni tengd sjálfbærni, nýsköpun í auðlindanýtingu, sprúðlandi sprotar, dans, fjármögnun, sjóböð, sprengingar, óvæntir viðburðir og margt fleira.“ segir Stefán Pétur vöruhönnuður og dagskrárstjóri HönnunarÞings.

,,Bæði er hægt að nýta hátíðina til að fá hugmyndir, mynda tengsl og öðlast nýja sýn á stóru verkefni samtímans en jafnframt til að njóta þess að sjá, heyra og upplifa eitthvað nýtt og spennandi.“ bætir Stefán Pétur við.

Á meðal viðburða á hátíðinni verður kynning Eims á verkefninu ,,LIFE-ICEWATER“ en þar kemur við sögu frumsamið lag Villa Vandræðaskálds um fráveitumál, Bloody Mary og kynning á meðhöndlun frárennslis frá Kjarnafæði þar sem verið er að prófa þennan nýja búnað. ,,Vonandi tekst okkur að blanda saman fróðleik, nýsköpun, tónlist og smá húmor – og nálgast fráveitumál frá aðeins öðru sjónarhorni“ segir Guðrún Huld verkefnastjóri kynningarmála hjá Eimi.

Hvernig fer hönnun og orka saman?

,,Við munum skoða það frá nokkrum hliðum og flétta nýsköpunni með“ segir Stefán Pétur. Til dæmis mun Gagarín sem er íslensk hönnunarstofa sem sérhæfir sig í gagnvirkri upplifunarhönnun og miðlun, byggja sitt erindi útfrá spurningunni Hvernig hönnum við rými sem hreyfa við fólki og skilja eitthvað eftir í minningum þess? Hönnunarstofan Kolofon leiddi endurmörkun Landsvirkjunar þar sem orkan er rauði þráðurinn í fjölbreyttu efni þeirra. Þau ætla að segja okkur hvernig litanotkun, letursmíði, hljóðheimur og hreyfingar geta orðið að sterkri ásýnd.Svo verður líka ótrúlega gaman að heyra frá nýja dúóinu Stúdíó Madditt og Beta en þar fara saman vísindamiðlarinn Margrét Hugadóttir og Elísabet Jónsdóttir grafískur hönnuður. Þær sérhæfa sig í að hanna sýningar og viðburði sem kveikja neista og virkja sköpunargleðina. Nýjustu samstarfs dæmin er kannski vísindasýningin ,,Hjartastrengir og vatnsæðar“ í Elliðaárstöð sem var valin staður ársins 2025 á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025 og fræðsluefnið Ósýnilegt verður sýnilegt sem fjallar um orku og veitur þar sem ferðalag kúksins, rafeindarinnar, varmans og vatnsdropans er sett fram sem æsispennandi rússíbanaferð. Litríkt efni með leikgleði og STEM menntun í fyrirrúmi!

Ég verð líka að fá að nefna Lavaforming: Sögur, orka og auðlindir framtíðarinnar sem var framlag Íslands til Fenneyjartvíæringsins. Arkitektarnir Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson hjá s. ap arkitektum sýna stuttmyndina Lavaforming sem snýst um hvernig mannvirki og borgir framtíðarinnar líta út án mengandi framleiðsluaðferða nútímans. Þau spyrja einnig: Getum við hraðað nýsköpun og tækniframförum með framsetningarformi skapandi greina eins og kvikmyndum, tölvuleikjum og sögum frá framtíðinni? Verkefnið Lavaforming er vegvísir og leiðarkerfi að nýjum hugmyndum þar sem hönnun, arkitektúr og vísindi tvinnast saman og þær prófaðar til að skoða hvernig samfélag framtíðarinnar gæti litið út.

Já og svo ætla færeyska dúóið Hugskotið að segja hvernig menning, skapandi greinar, staðarandinn og nýsköpun hafa skapað hátíðinni TONIK sérstöðu! Og þær stöllur munu jafnframt bjóða upp í dans“

Það er ljóst að hönnun, nýsköpun og orka verða skoðuð frá afar fjölbreyttum hliðum. Á dagskránni má jafnframt finna erindi sem bera heitin Leyndardómar djúpsteikingarpottsins – innlenda orkan sem gleymist, Hlusta og hvíla, Power Couples, Grjóthörð loftslagslausn og frumkvöðlaflumbra svo eitthvað sé nefnt.

Hægt er að skrá sig á alla hátíðina í heild sinni en einnig er í boði að koma á stök erindi. Norðlendingar eru hvattir til að nýta svo frábært tækifæri til að sækja innblástur í sínu nærumhverfi og njóta alls þess sem er í boði, nú eða bara kíkja á þau erindi sem heilla mest.

Hátíðin er skipulögð af Hraðinu og SSNE í samstarfi við fjölmarga aðila úr atvinnulífi, menningu, nýsköpun og háskólasamfélagi. SSNE gegnir lykilhlutverki í eflingu nýsköpunarsenunnar í landshlutanum og er einn helsti samstarfsaðili viðburðarins.

Tengdar greinar

Uppfært: 22. september 2026