Kristjánsbakarí á Akureyri hefur sagt upp þrjátíu og fimm starfsmönnum. Þetta er liður í endurskipulagningu bakarísins sem var stofnað árið 1912 og er eitt elsta iðnfyrirtæki landsins.
Sjá einnig: Breytingar á rekstri Kristjánsbakarís
Fram kom í svari við fyrirspurn Kaffið.is á dögunum að rekstur fyrirtækisins hefði verið þungur undanfarin ár og þá sérstaklega í kjölfar Covid-19.
Vilhjálmur Þorláksson, framkvæmdastjóri Gæðabaksturs, sem á og rekur Kristjánsbakarí, segir í samtali við ViðskiptaMoggann í dag að reynt verði að endurráða sem flesta starfsmenn að lokinni endurskipulagningunni. Hann segir að stór liður í þessum aðgerðum sé að tryggja starfsemina á Akureyri.
Auk uppsagnanna mun framleiðsla á vörum sem seldar eru á höfuðborgarsvæðinu undir merkjum fyrirtækisins framvegis fara fram í Reykjavík.
Nánari umfjöllun er að finna í ViðskiptaMogganum í dag.