Tónkvíslin, söngkeppni Framhaldsskólans á Laugum, fór fram í gærkvöldi. Kristjana Freydís stóð uppi sem sigurvegari eftir flutning á laginu Before he cheats eftir Carrie Underwood. Kristjana Freydís verður því fulltrúi Framhaldsskólans á Laugum í Söngkeppni framhaldsskólanna.
Hafdís Inga úr Borgarhólsskóla vann grunnskólahlutann með laginu All of me. Flutningur Þórdísar Petru á laginu Love on the brain var síðan valið vinsælast atriðið í símakosningu meðal áhorfenda.
Hlustaðu á sigurlögin í spilurunum hér að neðan.
Sjá einnig: Metnaðarfullt menningarverkefni framhaldsskólanema
https://www.facebook.com/lyngbrekka/videos/vb.1097881063/10211301834197114/?type=2&video_source=user_video_tab
https://www.facebook.com/lyngbrekka/videos/vb.1097881063/10211301842437320/?type=2&video_source=user_video_tab
UMMÆLI