NTC

Kristín R. Trampe verður Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2025

Kristín R. Trampe verður Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2025

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum fimmtudaginn 21. nóvember 2024 að útnefna Kristínu R. Trampe sem Bæjarlistamann Fjallabyggðar 2025. Þetta kemur fram á vef Fjallabyggðar.

Kristín R. Trampe hefur til fjölda ára verið með opna vinnustofu í Ólafsfirði, Smíðakompuna, á gamla vinnustaðnum sínum, apótekinu við Aðalgötu, þar sem hún jafnframt býður til sölu einstaklega falleg handunnin listaverk úr viði og öðrum efnum. Kristín hefur um árabil leikið sér við útsögun, útskurð og smíðar en hún sagar alla sína muni með tifsög og notar ýmsan efnivið. 

Kristín hóf feril sinn í handverki með útskurði og tálgun en eignaðist sína fyrstu tifsög sextug að aldri. Hún lærði útskurð hjá Jóni Hólmgeirssyni á Akureyri og dýpkaði þekkingu sína á námskeiðum hjá Sigríði Jónu Kristjánsdóttur, betur þekktri sem Siggu á Grund. Ástríða hennar fyrir handverki og hæfileikinn til að skapa einstök verk hafa fangað athygli bæði heimamanna og gesta Fjallabyggðar.

Sambíó

UMMÆLI