MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Kristín Jóhannesdóttir ráðin sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Skärmavbild 2022-09-28 kl. 16.11.56
kaffid.is

Kristín Jóhannesdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Kristín er fædd 21. mars 1975. Hún útskrifaðist sem grunnskólakennari frá Háskólanum á Akureyri vorið 1999 og með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu frá stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands 2012. Hún hefur starfað hjá Akureyrarbæ frá árinu 2000, fyrst í 10 ár sem kennari við Lundarskóla og síðan í tvö ár sem deildarstjóri við sama skóla. Hún var skólastjóri við Oddeyrarskóla 2012-2019 og skólastjóri við Giljaskóla frá 2019.

Samhliða störfum sínum hefur hún verið stundakennari við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hún hefur tekið þátt í Evrópu- og Norðurlandasamstarfi um menntun án aðgreiningar síðan 2014 og hefur síðastliðin ár starfað í skólamálanefnd Skólastjórafélags Íslands. Kristín mun taka til starfa fljótlega.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026