MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Krefjast þess að Akureyrarbær hætti að nota Rapyd sem færsluhirði

Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·
OLYMPUS DIGITAL CAMERA
kaffid.is

Undirskriftalisti á Ísland.is hefur verið í dreifingu meðal bæjarbúa undanfarna daga þar sem þess er krafist að Akureyrarbær hætti að nota fyrirtækið Rapyd sem færsluhirði.

Vísað er í stuðning forstjóra fyrirtækisins við aðgerðir Ísraelska hersins á Gaza og Vesturbakkanum og meintrar þáttöku fyrritækisins í þeim aðgerðum:

„Við krefjumst þess að Akureyrarbær hætti að nota Rapyd sem færsluhirði. Færslu­hirðir­inn Rapyd er ísra­elskt fyr­ir­tæki með úti­bú á Íslandi, forstjóri fyrirtækisins hefur opinberlega yfirlýst stuðning sinn við aðgerðir Israelsmanna á Gaza og Vesturbakkanum. Þá hafa fjöl­miðlar í Ísra­el flutt frétt­ir af beinni þátt­töku Rapyd í stríðinu því fyr­ir­tækið hef­ur sett á stofn sér­staka stríðsstofu eða „war room“ til að aðstoða Ísraelska herinn.“

Þegar þessi frétt er skrifuð hafa rúmlega þrjú hundruð manns skrifað undir listann, ýmist nafnlaust eða undir nafni. Lesendur geta skoðað listann með því að smella hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026