MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Krabbameinsfélagið blæs til afmælisveislu í Hofi

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
20221213_ros_DSF8118-Edit
kaffid.is

Krabbameinsfélag Íslands fagnar 75 ára afmæli í ár og mun félagið halda upp á þessi merku tímamót.

Allt starf Krabbameinsfélagsins miðar að því að fækka þeim sem fá krabbamein, fjölga þeim sem læknast eða lifa með krabbameini og að líf og lífsgæði þeirra og aðstandenda þeirra séu sem best.

„Fáir vita að Krabbameinsfélagið er alfarið rekið fyrir sjálfsaflafé. Starfsemin er möguleg vegna stuðnings frá einstaklingum og fyrirtækjum í landinu. Þar skipta Mottumars og Bleiku slaufan miklu máli, en ekki síst frá stórum hópi dásamlegra Velunnara sem styðja okkur mánaðarlega,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Í ár á félagið 75 ára afmæli og vill Krabbameinsfélag Íslands nýta þau tímamót til að þakka dyggum stuðningsaðilum, mánaðarlegum styrktaraðilum, öðrum velunnurum, sjálfboðaliðum og félagsmönnum aðildarfélaga um allt land – þar á meðal félögum í Krabbameinsfélagi Akureyrar KAON – sem er eitt öflugasta aðildarfélag Krabbameinsfélagsins.

Afmælisviðburðir eru á fjórum stöðum á landinu og hófust leikar í vikunni með vel sóttum veislum í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ miðvikudaginn síðastliðinn og í gær á Sviðinu á Selfossi. Í næstu viku er komið að Akureyri en veisla verður í Hofi þriðjudaginn 8. september kl. 17 og svo á Fáskrúðsfirði 14. september.

Þetta verður einstaklega ljúfur og skemmtilegur viðburður þar sem fagnað verður þeim áföngum sem hafa náðst, notið góðra veitinga og skemmtiatriða frá Jóni Ólafssyni tónlistarmanni, sem verður veislustjóri og Hildi Völu Einarsdóttur, söngkonu.

„Við hlökkum mikið til að fá að þakka öllu hinu góða stuðningsfólki Krabbameinsfélagsins fyrir stuðninginn. Það að fólk láti sig málin varða og sýni stuðninginn í verki skiptir öllu máli og gerir alla starfsemi Krabbameinsfélagsins mögulega, hvort sem um er að ræða forvarnir, vísindastarf eða stuðning. Stórir áfangar hafa náðst en áskoranirnar eru líka margar fram á veginn. Okkar öfluga stuðningsfólk á allt gott skilið og það verður gaman að hitta það í heimabyggð“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.

Skráning á viðburð fer fram hér https://forms.cloud.microsoft/e/D778r9uepS

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026